Sport

Friðrik aðstoðar Sigurð

Friðrik Ingi lætur sína menn í Grindavík heyra það á síðustu leiktíð
Friðrik Ingi lætur sína menn í Grindavík heyra það á síðustu leiktíð Mynd/Vilhelm

Friðrik Ingi Rúnarsson hefur verið ráðinn aðstoðarlandsliðsþjálfari íslenska A-landsliðsins í körfuknattleik og mun vinna með Sigurði Ingimundarsyni þjálfara í framtíðinni. Friðrik er öllum hnútum kunnugur hjá landsliðinu og hefur áður verið aðalþjálfari þess.

Þessi ráðstöfun er ekki ólík þeirri sem Guðmundur Guðmundsson tók að sér á dögunum þegar hann gerðist aðstoðarmaður Alfreðs Gíslasonar hjá handboltalandsliðinu og í samtali við NFS í kvöld hafði Friðrik einmitt orð á því að hann hefði feginn brugðist við kalli landsliðsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×