Fótbolti

Adriano þakkar samherjum sínum

Adriano hafði ekki skorað í átta mánuði þar til hann loksins braut ísinn gegn Atalanta á laugardag. Hér kyssir hann Luis Figo í fagnaðarlátunum á laugardag.
Adriano hafði ekki skorað í átta mánuði þar til hann loksins braut ísinn gegn Atalanta á laugardag. Hér kyssir hann Luis Figo í fagnaðarlátunum á laugardag. MYND/AFP

Brasilíski sóknarmaðurinn Adriano tileinkaði liðsfélögum sínum hjá Inter markið sem hann skoraði gegn Atalanta á laugardag. Markið var hans fyrsta í átta mánuði fyrir félagið, en Adriano hefur verið í mikilli lægð á þessu ári eftir frábært tímabil í fyrra.

“Ég er himinlifandi,” sagði Adriano í viðtali við sjónvarpsstöð Inter á Ítalíu. “Samherjar mínir hafa aldrei misst trúna á mér og þeir hafa hjálpað mér í gegnum mín vandamál. Ég vona að þetta mark verði til þess að nýr kafli hefjist í mínu lífi. Ég á félögum mínum í liðinu allt að þakka, stuðningur þeirra hefur verið ómetanlegur,” sagði Adriano með kökkinn í hálsinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×