Sport

Útilokar ekki að vera lengur hjá Newcastle

Giuseppi Rossi
Giuseppi Rossi NordicPhotos/GettyImages

Ítalski U-21 árs landsliðsmaðurinn Giuseppi Rossi hjá Manchester United, útilokar ekki að framlengja lánssamning sinn við Newcastle United, en hann verður fyrst um sinn hjá félaginu fram í janúar.

"Ég verð hjá Newcastle í það minnsta fram í janúar og eftir það er hægt að skoða hvort ég klára leiktíðina þar. Þessi lánssamningur var gerður með það fyrir augum að hjálpa bæði mér og Newcastle, því þar á ég meiri möguleika á að spila með aðalliðinu," sagði Ítalinn ungi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×