Innlent

Slapp ómeiddur þegar eldur gaus upp í jeppa

Ökumaður, sem var einn á ferð í jeppa sínum, slapp ómeiddur, þegar eldur gaus upp í bílnum í Eyjafirði í gærkvöldi. Þegar eldurinn kom upp missti ökumaður stjórn á bílnum, sem hafnaði utan vegar, en þar komst maðurinn út. Kallað var á slökkviliðið á Akureyri en þegar það kom á vettvang var bíllinn orðinn ónýtur af eldi. Slökkt var í glæðunum. Eldsupptök eru ókunn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×