Innlent

50-60 þúsund manns í miðbænum

Talið er að á bilinu 50-60 þúsund manns hafi lagt leið leið sína í miðbæinn nú í eftirmiðdaginn til að fylgjast með hátíðardagskrá í tilefni þjóðháítðardagsins.

Að sögn Geirs Jóns Þórissonar, yfirlögregluþjóns í Reykjavík, er það eilítið minna en í fyrra. Veður hefur verið með ágætasta móti í borginni og lítið rignt eftir hádegið. Tvær stórar skrúðgöngur fóru niður í miðbæ fyrr í dag, önnur úr Vesturbænum og hin ofan af Hlemmi. Allt hefur farið vel fram að sögn lögreglu en hún hefur þó fengið kvartanir vegna hunda í miðbænum en bannað er að vera með þá á þessum slóðum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×