Erlent

Grét og baðst afsökunar

Með tárin í augunum hefur Hagamaðurinn, Niklas Lindgren, beðið þrjú af sex fórnarlömbum sínum afsökunar á að hafa ráðist á þau. Í einhverjum tilfellum hefur hann brostið í grát. Hagamaðurinn hefur viðurkennt að hafa ráðist á sex konur og er ákærður fyrir það.

Konum í hverfinu Haga í Umeå var haldið í greipum óttans í fjölda ára en Hagamaðurinn byrjaði fyrst að ráðast á konur árin 1999-2000, að sögn Aftonbladet. Ekkert bar svo á árásum í fimm ár en í fyrra nauðgaði hann konu og reyndi svo að drekkja henni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×