Fótbolti

Genginn í raðir Atalanta

Christian Vieri hefur spilað fyrir fjölda liða á ferlinum, en var lengst af hjá Inter þar sem hann skoraði 102 mörk í 143 leikjum
Christian Vieri hefur spilað fyrir fjölda liða á ferlinum, en var lengst af hjá Inter þar sem hann skoraði 102 mörk í 143 leikjum NordicPhotos/GettyImages
Ítalski framherjinn Christian Vieri hefur gengið frá samningi við lið Atalanta í A-deildinni. Vieri var síðast á mála hjá Sampdoria, en hefur lítið geta spilað undanfarið vegna hnémeiðsla. Hjá Atalanta fær þessi 33 ára gamli fyrrum dýrasti leikmaður heims nokkuð sérstakan samning, því hann spilar fyrir aðeins 1500 evrur á mánuði og fær svo greitt sérstaklega fyrir spilaða leiki og mörk sem hann skorar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×