Innlent

Bæjarstjóri Hornafjarðar lenti í 3. sæti í prófkjöri D-listans

Albert Eymundsson
Albert Eymundsson

Albert Eymundssyni, sitjandi bæjarstjóra á Hornafirði, var hafnað í prófkjöri sjálfstæðismanna í bænum í gær eftir því sem fram kemur á vefsíðunni hornafjörður.is. Það var Halldóra Bergljót Jónsdóttir, forseti bæjarstjórnar, sem bar sigur úr býtum en hún atti kappi við Albert um fyrsta sætið á listanum.

Halldóra hlaut samtals 222 atkvæði í fyrsta sæti, Björn Ingi Jónsson varð í öðru sæti með 249 en Albert varð að sætta sig við þriðja sætið með 187 atkvæði. Í fjórða og fimmta sæti urðu Björk Pálsdóttir og Einar Karlsson. Samtals kusu 424 í prófkjörinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×