Innlent

Slitnað upp úr viðræðum við sjúkraflutninga- slökkviliðsmenn

MYND/Egill

Slitnað hefur upp úr viðræðum Landsambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna við launanefnd sveitarfélaganna. Allar deildir slökkviliða landsins hafa verið boðaðar til fundar í Reykjavík í kvöld, þar sem ræða á stöðu mála. Samkvæmt heimildum NFS hyggjast slökkvi- og sjúkraflutningamenn grípa til aðgerða til að mótmæla litlum vilja sveitarfélaganna til að koma til móts við kröfur þeirra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×