Innlent

Fíkniefni fundust

MYND/Haraldur

Lögreglan í Reykjavík stöðvaði fólksbíl um klukkan hálf sex í nótt og reyndust allir í bílnum, þrír talsins, vera með fíkniefni á sér. Fólkið var bæði með hvít efni og e-töflur á sér auk þess sem að einn farþeganna var með stera í fórum sínum.

Fíkniefnin voru í pakkningum en ekki er vitað hvort þau voru til sölu eða hvort að fólkið hafi verið nýbúið að kaupa þau. Tveir karlar og ein kona voru í bílnum, þau eru öll um þrítug, og eru nú í yfirheyrslu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×