Lífið

Gvantanamó fangabúðirnar

Íslandsdeild Amnesty International og Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík efna til málþings um Gvantanamó fangabúðirnar og kvikmynd Michael Winterbottoms Leiðin til Gvantanamó (The Road to Guantánamo).
Íslandsdeild Amnesty International og Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík efna til málþings um Gvantanamó fangabúðirnar og kvikmynd Michael Winterbottoms Leiðin til Gvantanamó (The Road to Guantánamo).

Íslandsdeild Amnesty International og Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík efna til málþings um Gvantanamó fangabúðirnar og kvikmynd Michael Winterbottoms Leiðin til Gvantanamó (The Road to Guantánamo). Myndin lýsir atburðum í lífi þremenninganna Shafiq Rasul, Asif Iqbal og Rhuhel Ahmed, sem leiddu til þess að þeir voru handteknir og sendir til Gvantanamó. Asif Iqbal og Rhuhel Ahmed eru gestir hátíðarinnar og Amnesty International. Þeir munu lýsa reynslu sinni og taka þátt í pallborðsumræðum ásamt Jóhönnu K. Eyjólfsdóttur, framkvæmdastjóra Íslandsdeildar Amnesty International, og Hrafnhildi Gunnarsdóttur kvikmyndagerðarmanni. Davíð Þór Jónsson varaformaður Íslandsdeildar Amnesty International stýrir umræðum.

Pallborðsumræðurnar verða haldnar í Iðnó klukkan 18:00 þriðjudaginn 3. október og að því loknu verður Leiðin til Gvantanamó sýnd í Tjarnarbíói kl. 20:10 þar sem Iqbal og Ahmed munu svara spurningum að lokinni sýningu myndarinnar. Þeir verða jafnframt viðstaddir frumsýningu hennar mánudaginn 2. október kl. 20:10 í Tjarnarbíói. Þriðja og síðasta sýning myndarinnar verður síðan laugardaginn 7. október kl. 22.00

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.