Innlent

Hvetur ökumenn til að leggja bílum við myrkvun í kvöld

Sjóvá Forvarnahúsið hvetur ökumenn á þeim svæðum þar sem götuljósin verða myrkvuð í kvöld til að njóta myrkursins og leggja bílum sínum á tímabilinu 22-22.30 meðan myrkvunin stendur yfir við upphaf alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík. Í tilkynningu frá Forvarnahúsinu eru þeir sem nauðsynlega þurfa að vera á ferðinni hvattir til að fara sérstaklega varlega, aka í samræmi við aðstæður og nota ekki háu ljósin innanbæjar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×