Innlent

Búið að hreinsa mest allt stöðvarhúsið

Hellisheiðarvirkjun
Hellisheiðarvirkjun MYND/Vilhelm

Búið er að ljúka grófhreinsun á stöðvarhúsi Hellisheiðarvirkjunar en þar lak saltpéturssýra úr lögn í nótt. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins vinnur nú að fínhreinsun og verður því verki lokið innan skamms. Forráðamenn virkjunarframkvæmdanna hafa átt fundi með tæknimönnum Mitshubisi en þeir framleiða vélar virkjunarinnar og verður prófunum á fyrstu vélinni nú haldið áfram.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×