Viðskipti innlent

Glitnir eykur gagnsæi

Merki glitnis Glitnir hefur aukið gagnsæi í hlutabréfaeign bankans.
Merki glitnis Glitnir hefur aukið gagnsæi í hlutabréfaeign bankans.

Glitnir hefur tilkynnt að bankinn muni flytja þá hluti sem keyptir hafa verið til að verja bankann fyrir áhættu tengdri framvirkum viðskiptum undir auðkennið GLB Hedge.

Greiningardeild Glitnis segir markmiðið með aðgreiningunni þá að auka gagnsæi hlutabréfaeignar bankans. Þetta er svipaður háttur og Landsbankinn hafði á með stofnun LI-Hedge undir lok ágúst.

Deildin segir að forvitnilegt verði að fylgjast með hvort Kaupþing og Straumur-Burðarás fjárfestingabanki fylgi ekki fordæmi bankanna tveggja á næstunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×