Innlent

Alcoa barst sprengjuhótun

Sprengjuhótun barst símleiðis á skrifstofur Alcoa á Reyðarfirði rétt fyrir hádegi í gær.

Að sögn Ernu Indriðadóttur, upplýsingafulltrúa Alcoa hér á landi, talaði maðurinn sem hringdi inn hótunina ensku en setti ekki fram neinar kröfur í símtalinu. Hún segir þó að brugðist hafi verið við samkvæmt vinnureglum og lögreglan kölluð á staðinn.

Að sögn Ernu fannst ekkert óvenjulegt við leit lögreglu í húsinu og ekki var talin þörf á því að grípa til frekari aðgerða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×