Methagnaður hjá Kaupþing banka 27. apríl 2006 10:15
Hagnaður Kaupþing banka nam 18,8 milljörðum króna á fyrsta ársfjórðungi 2006. Á sama tíma á síðasta ári nam hagnaðurinn 11,1 milljarði og er aukningin 69,5 prósent á milli ára. Hagnaður á hlut var 28,3 krónur en hann var 17 krónur á fyrsta ársfjórðungi 2005. Þetta er methagnaður í sögu bankans. Hagnaður Kaupþings banka fyrir skatta nam 22,18 milljörðum króna á fyrsta fjórðungi. Þetta er rúmum 7,8 milljörðum króna en á sama tíma í fyrra. Rekstrartekjur Kaupþings banka námu tæpum 35,5, milljörðum króna og er það 59,5 prósenta aukning á milli ára. Þar af námu rekstrartekjur breska bankans Singer & Friedlander rúmum 3,9 milljörðum króna á fyrsta ársfjórðungi. Í tilkynningu frá bankanum segir að það skýri hluta aukningarinnar. Hreinar vaxtatekjur Kaupþings banka á fyrsta ársfjórðungi 2006 námu tæpum 10,5 milljörðum króna og jukust þær um 48,8 prósent á milli ára. Þar af námu hreinar vaxtatekjur vegna Singer & Friedlander 1.9 milljörðum króna. Þá námu hreinar þóknanatekjur á fyrsta ársfjórðungi 8,6 milljörðum króna og er það 94,1 prósentu aukning frá sama tímabili í fyrra. Í tilkynningu frá bankanum kemur fram að aukningin skýrist annars vegar af tilkomu Singer & Friedlander inn í samstæðuna og hins vegar að af auknum þóknanatekjum hjá öllum afkomusviðum bankans. Gengishagnaður á fyrsta ársfjórðungi nam 13,5 milljörðum króna og jókst um 99,3 prósent miðað við sama tímabil í fyrra. Ástæða hækkunarinnar er mun hagstæðara markaðsumhverfi á norrænum fjármálamörkuðum en á sama ársfjórðungi í fyrra, auk sölu bankans á öllum eignarhlut sínum í Baugi Group hf.Rekstrarkostnaður á fyrsta ársfjórðungi nam 12,5 milljörðum króna og jókst um 79,3 prósent miðað við sama tímabil á síðasta ári. Ein af helstu ástæðum aukins rekstrarkostnaðar er tilkoma Singer & Friedlander inn í samstæðuna. Segir í tilkynningunni að án Singer & Friedlander hafi rekstrarkostnaður bankans á fyrsta ársfjórðungi hækkað um 34,8 prósent miðað við sama ársfjórðung 2005.Launakostnaður bankans á fyrstu þremur mánuðum ársins nam 7,4 milljörðum króna og jókst um 86,4 prósent frá sama tímabili í fyrra. Hækkunin skýrist að mestu af fjölgun starfsmanna en þeim fjölgaði um 843 á milli ára og voru 2.449 í lok marsmánaðar. Tilkoma Singer & Friedlander í samstæðuna skýrir að mestu leyti þá fjölgun stöðugilda sem orðið hefur á milli ára en alls störfuðu þar 519 starfsmenn í lok mars 2006.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Síminn þarf að greiða 400 milljónir króna Viðskipti innlent Gefa út afkomuviðvörun vegna dómsins Viðskipti innlent Umdeild viðskipti fá ekki áheyrn Hæstaréttar Viðskipti innlent Hildur ráðin forstjóri Advania Viðskipti innlent Segir allar ásakanir fullkomlega tilhæfulausar Viðskipti innlent Mögulega búið að hakka sig inn á Teams samskiptin þín og fleira Atvinnulíf Strákar og stálp fá styrk Viðskipti innlent Atvinnuleysi eykst Viðskipti innlent Bein útsending: „Landbúnaður er almannahagsmunir“ Viðskipti innlent Ása Steinars vann sigur gegn bandarísku markaðsfyrirtæki Viðskipti erlent Fleiri fréttir Gefa út afkomuviðvörun vegna dómsins Síminn þarf að greiða 400 milljónir króna Segir allar ásakanir fullkomlega tilhæfulausar Bein útsending: „Landbúnaður er almannahagsmunir“ Strákar og stálp fá styrk Umdeild viðskipti fá ekki áheyrn Hæstaréttar Hildur ráðin forstjóri Advania Atvinnuleysi eykst Skipti í brúnni hjá Indó Smári Rúnar ráðinn fjármálastjóri „Það er gjá að myndast á leigumarkaðnum“ Viðar nýr sölustjóri Wisefish Ráðinn framkvæmdastjóri COWI á Íslandi Semja um fjögurra milljarða króna lán Þak styrkja til turnanna tveggja lækkað Efnt til nýrrar loðnuleitar í kapphlaupi við tímann Verður framkvæmdastjóri þróunarsviðs Emblu Medical Gjaldþrota meðhöndlari Auðunn ráðinn viðskiptastjóri Reita Ráðin mannauðs- og gæðastjóri Hörpu „Minnstu loðnuvertíð sögunnar að ljúka“ Hætta við breytta tollflokkun pítsaostsins Tryggja sér lóðir fyrir höfuðstöðvar á rúman milljarð Samkeppniseftirlitið segir samrunann auka samkeppni Landsvirkjun greitt út níutíu milljarða á fjórum árum Halda á miðin þrátt fyrir kvóta „upp í nös á ketti“ Þurfa að taka koffíndrykk á reynslu Stjórnir Samkaupa og Heimkaupa undirrita samrunasamning Örkvóti í loðnu gæti skilað milljarði í útflutningstekjur Afkoma ársins undir væntingum Sjá meira