Sport

Real náðu að bjarga andlitinu

Sergio Ramos bjargaði heiðri Real Madrid.
Sergio Ramos bjargaði heiðri Real Madrid. Getty
Real Madrid rétt náðu að bjarga andlitinu á heimavelli á móti botnliði Malaga með marki frá Sergio Ramos á 90. mínútu. Malaga komst yfir snemma leiks með marki frá Bovio og héldu þeirri forystu allt fram á 67. mínútu þrátt fyrir mikla pressu frá Madrid. Þá skoraði Zidane úr vítaspyrnu eftir að brotið hafði verið á Raúl innan teigs. Madrid fengu fjölmörg færi til að gera út um leikinn en Arnau í marki Malaga átti stórleik. Sergio Ramos náði hinsvegar að skalla í netið hjá Arnau undir lokin og fagnaði hann vel og innilega. Enginn meistarabragur var á stjörnum prýddu liði Madridinga í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×