Lífið

Leikarinn Chris Penn látinn

Leikarinn Chris Penn látinn fannst við fjölbýlishús í Santa Monica í Kaliforníu síðdegis í gær. Chris Penn er bróðir hins þekkta leikara Sean Penn. Ekki er enn vitað hvernig hann lést. Í dag átti að frumsýna síðustu mynd Chris sem hann lék í The Darwin Awards á Sundance kvikmyndahátíðinni. Chris Penn lék í fjölda kvikmynda og má þar nefna Rumble Fish, All the Right Moves, Mulholland Falls og Reservoir Dogs.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×