Innlent

55 teknir fyrir of hraðan akstur nærri Blönduósi

Lögreglan á Blönduósi hafði í nógu að snúast við umferðareftirlit í gær ef marka má fjölda þeirra sem teknir voru fyrir of hraðan akstur. Alls voru 55 stöðvaðir frá hádegi í gær og fram yfir miðnætti en sá sem hraðast ók var á um 140 kílómetra hraða á klukkustund. Mikil umferð var um umdæmi lögreglunnar á Blönduósi enda fjölmargir á leið norður í land í páskafríiinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×