Innlent

Eldur á tjaldsvæði Akraness

Klukkan tuttugu mínútur yfir átta í kvöld fékk lögreglan á Akranesi tilkynningu um eld í aðstöðu á tjaldsvæði bæjarins. Logaði glatt þegar slökkvilið bar að garði en um rúman hálftíma tók að ráða niðurlögum eldsins.

Á þessum tímapunkti getur lögreglan ekki sagt til um eldsupptök en útilokar jafnframt ekki íkveikju. Skúrinn sem brann var með salerniaðstöðu fyrir tjaldferðalanga á svæðinu og er eignatjón talsvert.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×