Körfubolti

Snæfell á toppinn

Snæfell vann gríðarlega mikilvægan sigur á Grindavík á útivelli í Iceland Express-deild karla í kvöld, 68-75. Með sigrinum komst Snæfell á topp deildarinnar.

Snæfell er nú með 16 stig í fyrsta sæti en Skallagrímur og KR koma í næstu sætum með 14 stig. Suðurnesjaliðin Grindavík, Njarðvík og Keflavík eru öll með 12 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×