Viðskipti innlent

EasyJet enn verðmætara

Nýtt verðmat á easyjet
Verðmatsgengi easyJet er komið langt yfir það gengi sem FL Group seldi á.
Nýtt verðmat á easyjet Verðmatsgengi easyJet er komið langt yfir það gengi sem FL Group seldi á.

Fjárfestingabankinn Morgan Stanley hefur hækkað verðmatsgengi sitt á easyJet úr 360 pensum á hlut í 450 og spáir góðu ferðamannasumri eins og sést berlega á farþegatölum í júní. EasyJet kemur einnig vel út þegar kennitölur stærstu lággjaldaflugfélaganna eru bornar saman.

Gengi easyJet stendur nú í 440 pensum á hlut en FL Group seldi tæplega sautján prósenta hlut í mars á 340 pens. Bréfin hafa því hækkað um 30 prósent frá sölunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×