Innlent

Gert að sveigja reglur um áhættudreifingu

Byggðastofnun.
Byggðastofnun. Mynd/Vilhelm

Fyrrverandi stjórnarformaður Byggðastofnunar segir ríkisstjórnina hafa fyrirskipað að sveigja reglurnar um áhættudreifingu, þegar Eignarhaldsfélag Vestmanneyja var keypt. Og endurskoðunarfyrirtækið Deloitte og Touche staðfesti á stofnskjali Eignarhaldsfélagsins að allt stofnfé hefði verið greitt. En helmingur fjárins skilaði sér ekki.

Guðjón Hjörleifsson sagði í samtali við fréttastofu í gær að hann og Þorsteinn Sverrisson hefðu einungis lánað kennitölu sína á stofnskjal Eignarhaldsfélags Vestmanneyja, þar til nægs hlutafjár hefði verið aflað. Helmingur stofnfjárins var aldrei greiddur. Hæstaréttarlögmenn sem fréttastofa ræddi við í dag sögðu að þetta væri alvarlegt brot á hlutafélagalögum og gæti falið í sér refsiábyrgð. Það eigi bæði við um þá sem standi að rangri tilkynningu og þá endurskoðendur sem staðfesti á stofnskjalinu að allt hlutafé hafi verið greitt í peningum. Eins og sést á stofnskjalinu var það endurskoðandi Deloitte og Touche í Eyjum.

 

Stjórn Byggðastofnunar ætlar að fjalla um úrsögn fulltrúa síns úr stjórn félagsins í ágúst og svarta greinargerð sem hann tók saman í kjölfar þess. Stofnunin tapaði tæpum áttatíu milljónum á hlut sínum í félaginu og deilir nú við Vestmenneyjarbæ og eignarhaldsfélagið um tuttugu og einnar milljónar ógreitt hlutafjárloforð. Guðjón Hjörleifsson segir nú að alltaf hafi legið fyrir að eini tilgangur félagsins hafi verið að kaupa fyrirtækið íslensk matvæli.

Kristinn H Gunnarsson sem var stjórnarformaður Byggðastofnunar á þessum tíma segir þetta rétt. Hann hafi þó haft efasemdir enda hafi verið í gildi reglur um áhættudreifingar um slíkar fjárfestingar og þær reglur hafi verið brotnar. Það hafi hinsvegar komið fyrirmæli frá Iðnaðarráðherra um að fara þessa leið og eftir þeim hafi verið farið.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×