Banaslys við Eystri-Rangá 24. júlí 2006 07:00
Banaslys varð síðdegis í gær á Suðurlandsvegi við Eystri-Rangá. Karlmaður á þrítugsaldri sem var á leið austur á mótorhjóli missti stjórn á hjólinu vestan megin við brúna yfir ána og lenti á rörstokki. Talið er að maðurinn hafi látist samstundis, en hann lenti við bakka árinnar og hjólið kastaðist út í ána. Lögregla telur ekki að um hraðakstur hafi verið að ræða. Á níunda tímanum í gærkvöldi ók sendibíll á staur á Vesturlandsvegi. Í fyrstu var talið að ökumaður sæti fastur inni í bílnum en þegar sjúkraliðar komu á staðinn kom í ljós að hann hafði kastast úr bílnum við áreksturinn. Hann var með meðvitund þegar sjúkrabíll kom á staðinn, en þegar blaðið fór í prentun var óljóst hve alvarleg meiðsl hans voru. Mikil umferð var til Reykjavíkur í gær enda ferðahelgi að ljúka. Á tímabili var umferðin svo mikil að óslitin röð lá frá borgarmörkunum upp að rótum Esjunnar. Að sögn lögreglu var einnig töluverður straumur bíla á leið til borgarinnar frá Selfossi en þar gekk öll umferð vel fyrir sig.
Innlent Mest lesið Erfiður tími þegar dóttirin kom út sem trans Innlent Farþegaflugvél hrapaði í Kasakstan Erlent Þau kvöddu á árinu 2024 Erlent Á vaktinni við lokunarpósta alla jólanótt Innlent Tveir vörðu jólanótt í fangaklefa Innlent Gott að geta sagt „þú ert hjartanlega velkominn“ Innlent Appelsínugular viðvaranir og vegir víða lokaðir Veður Dyr Péturskirkjunnar standa opnar Erlent Aðeins ein flugvél lent í Keflavík í dag Innlent Men Tolla komið í leitirnar: „Sannkölluð jólasaga“ Innlent Fleiri fréttir Fagna jólunum í Betlehem í skugga stríðs Hellisheiði og Þrengsli opna ekki fyrr en á morgun Aðeins ein flugvél lent í Keflavík í dag Útköll víða vegna óveðurs Erfiður tími þegar dóttirin kom út sem trans Gott að geta sagt „þú ert hjartanlega velkominn“ Appelsínugular viðvaranir og jólaboð hjá Hjálpræðishernum Á vaktinni við lokunarpósta alla jólanótt Tveir vörðu jólanótt í fangaklefa Gleðileg jól, kæru lesendur Vegir víða um land gætu lokast með litlum fyrirvara Varað við ferðalögum víða um land Margir á síðasta snúningi með jólapakkana Í sumum tilfellum eina hátíðlega stund dagsins Men Tolla komið í leitirnar: „Sannkölluð jólasaga“ Vonskuveður og þau sem eru á síðasta snúningi Fjúgandi hálka í kirkjugörðum Reykjavíkur Stolið hálsmen Tolla dúkkaði upp tuttugu árum síðar Nóg að gera hjá slökkviliðinu í nótt Mette óskaði Kristrúnu til hamingju Aðfangadagur: Hvar er opið og hve lengi? „Skiptir sannleikurinn engu máli?“ Fjölmenni gekk fyrir frið í miðborginni Rútur skildar eftir á Holtavörðuheiði og leiðinni lokað Vísnabók gefin til nýrra Hvergerðinga frá Hveragerðisbæ Vandræðamál sem ríkisstjórnin fær í arf Komust með flugvélinni á ögurstundu Stærstu mál stjórnarinnar bíða til 2026 Mínútu fyrr á ferðinni væri Tómas allur Allt kapp lagt á að landsmenn komist heim fyrir jól Sjá meira