Innlent

Ölvunarakstur og hraðakstur helsta orsök banaslysa

Frá þriggja bíla árekstri á Hafnarfjarðarvegi
Frá þriggja bíla árekstri á Hafnarfjarðarvegi MYND/Heiða Helgudóttir

Rannsóknarnefnd umferðarslysa birti í dag skýrslu sína um umferðarslys árið 2005. 19 manns létust í umferðarslysum í fyrra. Algengustu orsakir slysa voru ölvunarakstur og hraðakstur. Rannsóknarnefnd umferðarslysa birti í dag skýrslu sína um umferðarslys árið 2005.

Banaslysum í umferðinni fækkaði frá árinu áður og hefur fækkað árlega frá árinu 2002. Flest slys verða í dreifbýli, eða 73% og 69% slysanna verða í björtu. Í fæstum slysanna er því slæmum aðstæðum um að kenna heldur frekar að ökumenn sofni á verðinum eða keyri ekki í samræmi við aðstæður. Bílbeltanotkun er enn mjög ábótavant en árlega látast fjórir eða fimm sem líklega hefðu bjargast ef þeir hefðu verið í bílbelti.

Nefndin fjallar sérstaklega um umferðarslys sem varð á Upphéraðsvegi við Hallormsstaðaskóg. Flutningabíll með tengivagn ók á öfugum vegarhelmingi þegar hann mætti fólksbíl. Þegar ökumaður flutningabílsins reyndi að víkja missti hann stjórn á bíl sínum og fólksbíllinn lenti á gámi sem var á tengivagninum. Nefndin bendir á hversu óheppilegur vegurinn í gegnum Hallormsstaðaskóg er fyrir þungaflutninga. Flutningabíllinn var á leið til Kárahnjúka, en þessi leið er notuð til að flytja vistir og búnað til vinnusvæðisins án þess að vegurinn hafi verið búinn nægilega undir þessa umferð. Auk þess var ekki nægilega vel gengið frá farmi bílsins, en ökumanni var óheimilt að kanna farminn þar sem hann hafði verið innsiglaður af Tollgæslunni við komuna til landsins.

Nefndin vill beina þeim tilmælum til almennings að tilkynna til lögreglu ef grunur leikur á um að einstaklingar keyri undir áhrifum áfengis eða lyfja.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×