Innlent

Kosningabaráttan kostaði vart undir 200 milljónum

MYND/Pjetur

Kosningabarátta framboðanna fimm í Reykjavík hefur vart kostað undir tvö hundruð milljónum króna, að mati Viðskiptablaðsins. Þó brast ekki á auglýsingaflóð í taugatitringi síðustu dagana, eins og stundum hefur gerst. Sérfræðingar sem blaðið ræðir við eru almennt á því að auglýsingar færi framboðum ekki mikið aukafylgi, en geti frekar komið í veg fyrir mikið fylgistap, ef það blasi við.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×