Innlent

Sautján ára tekinn í fjórða sinn

Sjö voru teknir fyrir ölvunarakstur í höfuðborginni í nótt og í morgun. Þrír þeirra voru próflausir. Lögreglan svipti einnig ökumann bílprófi sínu sem ók í nótt á 163 kílómetra hraða austarlega á Miklubrautinni. Hann var ekki sá eini sem lögreglan þurfti að hafa afskipti af í nótt vegna hraðaaksturs því 17 ára piltur var tekinn á Suðurlandsvegi á 125 kílómetra hraða. Þetta er í fjórða sinn sem pilturinn er tekinn fyrir of hraðan akstur en hann hefur haft ökuréttindi í níu mánuði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×