Innlent

Hinir efnameiri geti ekki greitt fyrir forgang

MYND/Hari

Bæði Samfylkingin og Vinstri - grænir leggjast gegn þeim hugmyndum að hinum efnameiri verði heimilað að greiða fyrir það að komast framar á biðlista í heilbrigðiskerfinu, en hvatt er til umræðu um það í nýrri skýrslu á vegum nefndar heilbrigðisráðherra. Fulltrúi Samfylkingarinnar í nefndinni segir markmiðið að kalla eftir skýrum svörum stjórnmálaflokkanna í þessum efnum.

Skýrsla nefndar heilbrigðisráðherra um endurskilgreiningu verksviða innann heilbrigðisþjónustunnar var kynnt á föstudag. Þar kom meðal annars fram að fjárþörf heilbrigðskerfisins muni aukast á næstu árum og því þurfi að taka afstöðu til þess hvernig aukins fjár verði aflað. Í skýrslunni er meðal annars kallað eftir umræðu um það hvort og þá að hvaða marki heimila skuli efnameira fólki að kaupa sig fram fyrir á biðlistum án þess þó að það leiði til lakari þjónustu fyrir aðra.

Margrét Frímansdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, sem sæti átti í nefnd heilbrigðisráðherra, segir nefndina ekki leggja til að fólki borgi sig fram fyrir á biðlistum heldur sé verið að kalla eftir skýrri afstöðu flokka á Alþingi. Hún segir að það komi skýrst fram í skýrslunni að nefndin vilji ekki mismunun innan heilbrigðiskerfisins. Hins vegar hafi sú umræða verið undirliggjandi lengi hvort menn eigi að geta keypt sig fram fyrir á biðlistum. Stjórnmálaflokkarnir hafi veigrað sér við umræðunni og að hún telji að Samfylkingin sé eini stjórnmálaflokkurinn sem hafni þessari leið alfarið.

Spurð um það hvernig Samfylkingin vilji haga málum segir Magrét að flokkurinn telji að heilbrigðiskerfið sé samfélagslegt verkefni. Hins vegar megi skoða fyrirkomulag greiðslna, hvort stofnanir séu á föstum fjárlögum eða hvort þær eigi að vera verktengdar eða blanda af hvoru tveggja.

Þuríður Backman, fulltrúi vinstri - grænna í heilbrigðis- og trygginganefnd Alþingis, segir flokkinn ekki hafa átt fulltrúa í nefnd heilbrigðisráðherra en að það sé ekki á stefnuskrá vinstri - grænna að heimila efnafólki að greiða meira fyrir hraðari afgreiðslu í heilbrigðiskerfinu. Efnahagur fólks eigi að birtast í gegnum skattgreiðslu þess til ríkisins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×