Íslenski boltinn

Þrír Blikar í banni í lokaumferðinni

Blikar verða án þriggja leikmanna sem taka út bann í lokaumferðinni mikilvægu á laugardag
Blikar verða án þriggja leikmanna sem taka út bann í lokaumferðinni mikilvægu á laugardag Mynd/E.Stefán

Þrír leikmanna Breiðabliks munu taka út leikbann í lokaumferð Landsbankadeildar karla í knattspyrnu um helgina samkvæmt úrskurði aganefndar KSÍ. Þetta eru þeir Nenad Zivanovic, Guðmann Þórisson og Olgeir Sigurgeirsson, en þeir fá allir eins leiks bann eftir að hafa krækt í 6 gul spjöld í deildinni.

Aðrir leikmenn sem missa af lokaumferðinni eru þeir Andri Ólafsson hjá ÍBV, Sigmundur Kristjánsson hjá KR og Barry Smith hjá Val vegna fjölda áminninga - og David Hannah hjá Grindavík fyrir brottvísun í síðustu umferð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×