Innlent

Biðtími eftir lækni þrír til fjórir dagar

Óviðunandi ástand hefur verið í læknamálum og er biðtími eftir lækni allt að þrír til fjórir dagar, segja fulltrúar bæjarstjórnar Grindavíkur sem fundað hafa með fulltrúum heilbrigðisráðuneytisins vegna heilsugæslu í bænum og um málefni aldraðra.

Ráðuneytið lofar að kynna sér málið og leggja bænum lið um úrbætur, segja Grindvíkingar á heimasíðu bæjarins.

Fram kemur að á hjúkrunarheimilinu Víðihlíð dvelji nú um 25 vistmenn og sex manns bíði eftir vistun. Lögð er áhersla á að tryggja framtíð heimilisins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×