Innlent

Trufla stemningu Hótel Norðurljósa

Northern Light Inn Eigendur vilja losna við vinnubúðir úr sjónlínu.
Northern Light Inn Eigendur vilja losna við vinnubúðir úr sjónlínu.

Vinnugáma sem settir hafa verið upp vegna vinnu við Orkuver 6 í Svartsengi verður að flytja annað vegna þess að þeir hafa óheppileg áhrif á rekstur hótelsins Northern Light Inn - Hótels Norðurljósa. Féllst skipulags- og byggingarnefnd Grindavíkurbæjar á það með forsvarsmönnum hótelsins að flytja þurfi gámana frá lóðamörkum og úr sjónlínu við hótelið.

Bæjarverkfræðingur á að finna nýjan stað fyrir vinnubúðirnar á iðnaðarsvæði Hitaveitu Suðurnesja.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×