Fótbolti

Inter burstaði Livorno

Zlatan Ibrahimovic var á skotskónum hjá Inter Milan í kvöld
Zlatan Ibrahimovic var á skotskónum hjá Inter Milan í kvöld NordicPhotos/GettyImages

Heil umferð var á dagskrá í ítölsku A-deildinni í fótbolta í kvöld. Efsta liðið Inter Milan vann auðveldan 4-1 sigur á Livorno þar sem Ibrahimovic, Cruz og Materazzi skoruðu fyrir meistarana en fyrsta mark liðsins var raunar sjálfsmark.

Inter er á toppnum með 18 stig líkt og Palermo sem lagði Messina 2-1 í kvöld. Roma hélt þriðja sætinu í deildinni þrátt fyrir að gera aðeins jafntefli við Ascoli á heimavelli sínum 2-2, en Ascoli hefur ekki unnið leik til þessa í deildinni. AC Milan lagði Chievo 1-0 með marki frá Jankulovski.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×