Innlent

Sex fíkniefnamál í nótt

Hass og kókaín.
Hass og kókaín. MYND/NM

Sex fíkniefnamál komu til kasta lögreglunnar í Reykjavík og í Kópavogi í nótt. Það stærsta kom upp við húsleilt Kópavogslögreglunnar þar sem hún fann nokkurt magn af hassi, E-töflum og marijuana, sem búið var að pakka í smásöluumbúðir.

Tvítugur maður, sem var handtekinn á vettvangi í nótt viðurkenndi að eiga efnin og að hafa ætlað að selja þau. Hin málin fimm voru öll minniháttar og vörðuðu meðferð fíkniefna til einkaneyslu, og var öllum hlutaðeigandi sleppt að yfirheyrslum loknum í nótt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×