Innlent

Átta mánaða fangelsi fyrir rán

Hæstiréttur dæmdi í dag karlmann á þrítugsaldri í átta mánaða fangelsi fyrir rán sem hann framdi í félagi við annan mann í verslun tíu-ellefu í Kópavogi í apríl í fyrra. Maðurinn játaði fyrir dómi að hafa ógnað starfsstúlku verslunarinnar með skrúfjárni og skipað henni að opna peningakassanna en hann hafði 35 þúsund krónur upp úr krafsinu. Áður hafði Héraðsdómur Reykjanness dæmt manninn í jafnlanga fangelsisvist en skilorðsbundið sex mánuðanna en Hæstiréttur taldi ekki rétt að skilorðsbinda refsinguna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×