Sport

Sigurgöngu Reading lokið

Ívar Ingimarsson og félagar voru nálægt því að slá met Liverpool í næstefstu deild yfir flesta leiki spilaða án taps
Ívar Ingimarsson og félagar voru nálægt því að slá met Liverpool í næstefstu deild yfir flesta leiki spilaða án taps NordicPhotos/GettyImages
Reading, lið Ívars Ingimarssonar og Brynjars Bjarnar Gunnarssonar, tapaði fyrsta leik sínum í ensku 1. deildinni síðan í ágúst í kvöld þegar liðið lá 3-2 fyrir Luton á útivelli. Ívar og Brynjar voru báðir í byrjunarliði Reading í kvöld, en liðið hefur 12 stiga forystu á toppi deildarinnar þrátt fyrir tapið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×