Innlent

Anna Sigríður gefur kost á sér í Suðvesturkjördæmi

Anna Sigríður Guðnadóttir, varaformaður Samfylkingarinnar í Mosfellsbæ, hefur ákveðið að taka þátt í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi og stefnir að kjöri í 4.- 5. sæti á lista flokksins við alþingiskosningarnar í vor. Þetta kemur fram í tilkynningu frá henni í morgun.

Anna Sigríður á sæti í flokksstjórn Samfylkingarinnar og varastjórn kvennahreyfingar Samfylkingarinnar en hún starfar sem aðstoðarforstöðumaður Bókasafns- og upplýsingamiðstöðvar Landspítala - háskólasjúkrahúss.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×