Innlent

Tófan á ferð

MYND/Vilhelm

Illa leikin ær fannst á túni bóndans á Stað í Súgandafirði fyrir skömmu. Svo virðist sem tófan hafi verið að verki en ærin lifði þó árásina af. Frá þessu greinir á fréttavef Bæjarins besta en þar segir að ófögur sjón hafi mætt bóndanum, ullarflekkir hafi verið á víð og dreifð í kringum ána. Nokkuð mikið hefur sést til tófu í nágrenni bæjarins að undanförnu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×