Fótbolti

Vieira er velkominn hingað

Vieira fékk ljóta ræðu frá Mihajlovic árið 2000 og fékk bann fyrir vikið
Vieira fékk ljóta ræðu frá Mihajlovic árið 2000 og fékk bann fyrir vikið NordicPhotos/GettyImages

Serbneski varnarmaðurinn Sinisa Mihajlovic hjá Inter Milan á Ítalíu, segist muni bjóða Patrick Vieira velkominn ef hann kjósi að ganga í raðir Inter eins og orðrómur hefur verið á kreiki um að undanförnu. Mihajlovic var dæmdur í sex leikja bann árið 2000 fyrir að ausa Vieira kynþáttaníð í leik í meistaradeildinni.

"Ég verð manna ánægðastur ef Vieira ákveður að ganga í raðir Inter og held að allir yrðu mjög ánægðir. Ég hef ekkert á móti honum þó við höfum tekið smá rimmu þarna forðum. Svona lagað gerist á knattspyrnuvellinum, en það er nú orðið langt síðan," sagði Serbinn, sem þá lék með Lazio sem mætti Patrick Vieira og félögum í Arsenal.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×