Innlent

Kosið um sameiningu tveggja hreppa á Norðausturlandi

Þórshöfn á Langanesi.
Þórshöfn á Langanesi. MYND/PK

Kosið verður um sameiningu Þórshafnarhrepps og Skeggjastaðahrepps á Norðausturlandi í dag. Hugmyndin vaknaði meðal sveitarstjórnarmanna í hreppunum eftir sameiningarkosningar í haust þar sem íbúar í báðum sveitarfélögum samþykktu sameiningu við nágrannasveitarfélögin. Verði sameiningin samþykkt verður til tæplega 550 manna sveitarfélag. Þá verður jafnframt kosið til sveitarstjórna í 79 sveitarfélögum í vor í stað 80.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×