Sport

Celtic sigraði Hearts

Leikmenn Celtic fagna hér sigurmarki sínu í dag
Leikmenn Celtic fagna hér sigurmarki sínu í dag NordicPhotos/GettyImages
Glasgow Celtic bar sigurorð af Hearts 3-2 í æsilegum nýársleik í toppbaráttunni í skosku úrvalsdeildinni í dag. Hearts léku hluta úr leiknum manni færri, en með sigrinum er Celtic komið með sjö stiga forystu á toppnum í deildinni. Jankauskas og Pressley komu Hearts í 2-0 á heimavelli sínum eftir aðeins sjö mínútna leik, en tvö mörk frá McManus á síðustu fjórum mínútum leiksins tryggðu Celtic sigurinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×