Sport

Fer ekki í Afríkukeppnina

Michael Essien mun líklega lítið geta spilað fótbolta þennan mánuðinn
Michael Essien mun líklega lítið geta spilað fótbolta þennan mánuðinn NordicPhotos/GettyImages
Miðjumaðurinn sterki Michael Essien fer ekki með landsliði sínu í Afríkukeppnina vegna meiðsla sem hann hlaut í leiknum gegn West Ham á mánudaginn. Þetta er mikið áfall fyrir landslið Ghana, en Jose Mourinho sagði á heimasíðu Chelsea í gær að tilgangslaust væri fyrir leikmanninn að fara á mótið því hann gæti ekki spilað á næstunni og því væri hann betur settur í endurhæfingu á Englandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×