Innlent

Vill samkeppni um starfsfólk upp að vissu marki

Flosi Eiríksson.
Flosi Eiríksson. MYND/Pjetur

Oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi vill samkeppni milli sveitarfélaganna um starfsfólk upp að vissu marki til þess að binda enda á það sem hann kallar láglaunastefnu í gegnum samninga Launanefndar sveitarfélaganna.

Samfylkingin í Kópavogi efndi í gær til opins fundar um leikskólamál bæjarins en eins og greint hefur verið frá í fréttum hefur á fimmta tug starfsmanna sagt upp eftir áramót vegna óánægju með kjör sín. Þá hefur í allt haust gengið erfiðlega að manna allrar stöður á leikskólunum líkt og í nágrannasveitarfélögunum.

Flosi Eiríksson, oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi, segir brýnt að leysa leikskólavandann sem fyrst og hann telur að tími heildarsamninga hjá L aunanefnd sveitarfélaga sé á enda. Hann segir launasamninga launanefndarinnar allherjarsamninga, bæði lágmarks- og hámarkssamninga. Hann sé þeirrar skoðunar að bæjarmeirihlutinn í Kópavogi hafi túlkað þá samninga eins þröngt og hann geti og borgi eins lítið kaup og hann komist af með miðað við samningana. Þá verði samningarnir í raun láglaunasamningar.

Flosi telur að Kópavogur eigi að beita sér fyrir því að samningur launanefndarinnar verði rammasamningur og það megi borga hærra kaup eða umbuna starfsmönnum með öðrum hætti án þess að það sé brot á samningnum.

Aðspurður hvort hann sé að leggja til að það verði samkeppni milli sveitarfélaganna um fólk segir Flosi að hann telji að svo megi vera innan eðlilegra marka. Bæjarfélögin eigi að bjóða umhverfi, umbun, virðingu fyrir starfsfólki og góð laun og keppa þannig um starfsfólk. Það eigi að vera best að vinna í Kópavogi til þess að þar verði áfram bestu leikskólarnir.

Spurður hvort ekki sé hætta á því að allt besta fólkið safnist á einn stað ef farið verði út í samkeppni segir Flosi að það sé fullt til af frábæru fólki á sem vinni í leikskólageiranum. Það eigi að borga því um allt land gott kaup. Hann telji að sveitarfélögin verði að horfast í augu við þann vanda. Hann sé sjálfur í bæjarstjórn Kópavogs og reyni að vinna í þeim verkefnum sem séu þar og Kópavogur geti borgað meira kaup.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×