Innlent

Skora á bæjarstjórn að hækka laun

Vinstri grænir á Akureyri hafa sent frá sér svohljóðandi ályktun.

Vinstrihreyfingin grænt-framboð á Akureyri fagnar kjarabótum ófaglærðra starfsmanna leikskóla í Reykjavík enda löngu tímabært að bæta kjör þeirra. Hinsvegar er komin upp undarleg staða þegar leikskólakennarar koma til með hafa að lægri laun en leiðbeinendur. Fundurinn skorar á stjórnendur Akureyrarbæjar að semja um mannsæmandi laun við leikskólakennara og leiðbeinendur á vettvangi launanefndar sveitarfélaganna. Ef ekki tekst að semja um hækkun launa á þeim grundvelli ber Akureyrarbæ að segja sig úr samstarfi við launanefndina. Vel mætti hinsvegar spara laun hjá æðstu stjórnendum Akureyarabæjar."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×