Innlent

Vatnsleysustrandarhreppur verður Sveitarfélagið Vogar

Frá Vogum.
Frá Vogum. MYND/Valgarður

Félagsmálaráðuneytið hefur staðfest ákvörðun hreppsnefndar Vatnsleysustrandarhrepps um breytingu á nafni sveitarfélagsins í Sveitarfélagið Vogar. Þetta kemur fram á heimasíðu Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Þá hefur félagsmálaráðuneytið einnig staðfest stjórnsýsluheiti Húnavatnshrepps sem varð til við sameiningu Bólstaðarhlíðarhrepps, Sveinsstaðahrepps, Svínavatnshrepps og Torfalækjarhrepps þann 1. janúar síðastliðinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×