Innlent

Fundað vegna mála leikskólakennara í dag og á miðvikudag

MYND/GVA

Það ræðst á fundum samráðshóps um kjaramál leikskólakennara í dag eða á miðvikudag hvort hópurinn kemst að sameiginlegri niðurstöðu um tillögur að lausn í kjaramálum leikskólakennara. Samráðshópurinn var myndaður vegna óánægju leikskólakennara með kjör sín eftir samninga Reykjavíkurborgar við Eflingu og Starfsmannafélag borgarinnar í desember og á hópurinn að móta hugmyndir um lausnir fyrir launamálaráðstefnu sveitarfélaganna sem haldin verður á föstudaginn. Að sögn Bjargar Bjarnadóttur, formanns Félags leikskólakennara, sem á sæti í hópnum, eru engar hugmyndir enn fastar í hendi en hún bindur vonir við fundinn í dag og á miðvikudag. Auk Bjargar eru fulltrúar frá Launanefnd sveitarfélaganna, Reykjavíkurborg og leikskólastjórum í hópnum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×