Innlent

Hlynur Hallsson kallaður inn á þing fyrir Steingrím

MYND/GVA

Þingflokkur Vinstri - grænna kom saman í morgun í kjölfar fréttar um að formaður flokksins hefði slasast í gærkvöldi. Hlynur Hallsson hefur verið kallaður inn sem varamaður hans á þingi.

Þingmenn og starfsmenn flokksins voru að tínast á fundinn í morgun og voru að vonum slegnir yfir tíðindunum. Ögmundur Jónasson, þingflokksformaður Vinstri - grænna, segir að sem betur fer sé Steingrímur ekki í lífshættu. Aðspurður segir Ögmundur að þegar hafi verið gripið til ráðstafana vegna málsins og varamaður kallaður inn á þing fyrir Steingrím.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×