Innlent

Búið skipa fulltrúa í matarverðsnefnd

MYND/Sigurður Jökull

Forsætisráðherra hefur skipað fulltrúa í nefnd sem fjalla á um helstuorsakaþætti hás matvælaverðs á Íslandi og gera tillögur sem miða að því að færa matvælaverð nær því sem gengur og gerist í helstu nágrannaríkjunum.

Hallgrím ur Snorrason, hagstofustjór fer fyrir nefndinni en auk hans sitja í henni Ármann Kr. Ólafsson, aðstoðarmaður fjármálaráðherra, Jónína S. Lárusdóttir, skrifstofustjóri í iðnaðarráðuneytinu, Ólafur Friðriksson, skrifstofustjóri í landbúnaðarráðuneytinu , Axel Hall hagfræðingur, tilnefndur af utanríkisráðherra, Stefán Úlfarsson hagfræðingur , tilnefndur af ASÍ, Erna Bjarnadóttir hagfræðingur, tilnefnd af Bændasamtökum Íslands, Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins , Halldór B. Þorbergsson, hagfræðingur, tilnefndur af Viðskiptaráði Íslands, og Elín Björg Jónsdóttir frá BSRB.

Nefndinni er ætlað að skila tillögum fyrir mitt ár 2006 þannig að unnt verði að undirbúa hugsanlegar lagabreytingar til framlagningar á Alþingi næsta haust.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×