Innlent

Kosið um sameiningu sveitarfélaga í Þingeyjarsýslu

Frá Húsavík.
Frá Húsavík.

Kosið verður um sameiningu fjögurra sveitarfélaga í Þingeyjarsýsluá laugardaginn kemur, en íbúar þeirra samþykktu sameiningu sjö sveitarfélaga í sýslunni í sameiningarkosningum í október síðastliðnum.Sveitarfélögin sem um ræðir eru Húsavíkurbær, Kelduneshreppur, Öxarfjarðarhreppur og Raufarhafnarhreppur en íbúar þeirra eru rúmlega þrjú þúsund.

Samstarfsnefnd um sameiningu sveitarfélaganna hefur gefið út kynningarbækling um sameiningu þeirra eftir því sem fram kemur á vef Sambands íslenskra sveitarfélaga . Í bæklingnum er áhersla lögð á að kynna sjónarmið íbúa til sameiningar sveitarfélaganna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×