Innlent

Bjóða fram saman undir nafninu Í-listinn

Frá Ísafirði.
Frá Ísafirði. MYND/GVA

Samfylkingin, Vinstri - grænir og Frjálslyndir og óháðir hafa ákveðið að bjóða fram sameiginlegan lista til bæjarstjórnar Ísafjarðar í vor undir nafninu Í-listinn Ísafjarðarbæ. Þetta kemur fram á vef Bæjarins besta. Prófkjör vegna framboðsins verður haldið laugardaginn 25. febrúar og verður það opið öllum kjósendum sem ekki eru flokksbundnir í öðrum stjórnmálaflokkum. Hver hinna þriggja flokka mun tilnefna fjóra frambjóðendur í prófkjörið, alls tólf manns, sem valið verður úr í fjögur efstu sæti listans. Þá hefur verið ákveðið að óflokksbundnir frambjóðendur eigi kost á að bjóða sig fram gegnum flokkana þrjá sem tilnefna í prófkjörið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×