Innlent

Forval hjá VG á Akureyri 28. janúar

Frá Akureyri.
Frá Akureyri.
Forval hjá Vinstrihreyfingunni - grænu framboði á Akureyri fyrir bæjarstjórnarkosningar fer fram laugardaginn 28. janúar. Fram kemur í tilkynningu frá kjörstjórn að k osið verð i um sex efstu sætin á framboðslista VG á Akureyri fyrir kosningar nar. N íu einstaklingar kost á sér, fimm karlar og fjórar konur. Þau sem gefa kost á sér eru:

1. sæti: Baldvin H. Sigurðsson

1. sæti: Valgerður H. Bjarnadóttir

1.-3. sæti: Dýrleif Skjóldal Ingimarsdóttir

2. sæti: Wolfgang Frosti Sahr

2.-3. sæti: Jón Erlendsson

3.-4. sæti: Baldvin Esra Einarsson

4.-6. sæti: Kristín Sigfúsdóttir

5.-6. sæti: Jóhannes Árnason

6. sæti Lilja Guðmundsdóttir

Kosningarétt í forvalinu hafi allir skráðir félagsmenn í VG, 16 ára og eldri með lögheimili í Akureyrarkaupstað. Til að tryggja jafna stöðu kynjanna á listanum munu fulltrúar af gagnstæðu kyni skipa tvö efstu sætin sem og hver tvö sæti þar á eftir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×